Lögreglan stóð sig vel.

Ég var við Alþingishúsið í gær og fannst lögreglan standa sig vel. Það var með ólíkindum hvað lögreglunni var ögrað, þá sérstaklega einstökum mönnum. Það var staðið með pottana alveg upp ví ðandlitið á þeim, og lamið og barið í langan tíma og svo líka með flautu og flautað upp í eyrað á þeim. Hvaða tilgangi það átti að þjóna veit ég ekki. Það sem ég sá til lögreglunnar í gær fannst mér hún sinna sínu hlutverki. En það gerðu fleiri, flestir mótmælendur stóðu sig vel í að mótmæla, börðu í potta, dósir hjólbörur slógu trommur flautuðu og kölluðu. Og úthaldið var ótrúlegt.

mbl.is Eggjum kastað og málningu slett á stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband