Eygló Harðardóttir Framsókn, flutti merkilega ræðu á Alþingi fyrir nokkru. Merkilega að því leyti að svo virðst sem að hún hafi og sé stödd á öðrum hnetti. Hvaða efnahagslegu hryðjuverk voru Samf. og Sjálfstæðisf. að fremja á þjóðinni eins og Eygló fullyrðir í ræðu sinni? Núverandi ríkisstjórn er að hreinsa skítinn eftir frjálshyggjudeild Sjálfstæðisf. sem næstum hafði lagt Ísland í rúst með 18 ára óstjórn á íslensku efnahagslífi segir Eygló. Var ekki Framsókn með Sjálfstæðisf. í stjórn mestan hluta þess tíma, og vildi halda áfram að framleiða skít. Var ekki Framsókn í stjórn þegar bankarnir voru einkavæddir Eygló? En það er aðalástæðan að svona er komið fyrir þjóðinni. Fengu ekki menn tengdir Framsókn annan bankann í sínar hendur á gjafverði, annars bara stjórnarslit. Var ekki einn stjórnenda Kaupþings sonur fyrrverandi ráðherra Framsóknar? Þar sem hann og fleiri tóku sér fáránlega há laun allt í skjóli Framsóknar. Ef þessi málfluttningur er hin nýja Framsókn ja þá vona ég að það verði langt í það að Framsókn komist í stjórn. Læt staðar numið að sinni en meira um þessa ræðu seinna. |
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 7
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 109777
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skýring: Eftir að Framsóknarmenn skiptu um haus á jakkafötum formannsins halda þeir, að þeim komi fortíð sín ekki við!
Auðun Gíslason, 14.2.2009 kl. 04:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.