Mótmæli, á rangri leið.

Þessi mótmæli við Hótel Borg eru í andstöðu við flest alla sem í raun vilja mótmæla ástandinu. Bara skemma fyrir. Þessir örfáu, teljast í tugum eru ekki fulltrúar fjöldans sem ósáttur er. Gera bara illt verra og málstaðinn slæman.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar aðgerðarlaysi stjórnvalda er algjört gagnvart fjármálaspillingu, sem veldur ómældum fjárhagsörðugleikum fyrir hinn almenna borgara, þó svo að mótmælt hafi verið fyrir framan Alþingi minnst 17 sinnum. Á þessum ófremdartímum , er það háðung við fólkið, að setja upp skrípaleik ráðalausra forustumanna. Geir Haarði er á báðum áttum með að stefna bresku ríkisstjórninni vegna beitingu hryðjuverkalagana á okkur. Hverkonar óstjórn og aumingjaskapur er þetta. Eru forráðamenn hræddir um að þeirra eigin þátttaka í útfarar ævintýrinu komi fram á sjónarsviðið, ef farið verður í hart gegn bretum. " Allt upp á yfirborðið " er viðkvæðið.  Ganga skal hægt um gleðinnar dyr og gá að sér. Enginn veit sína æfina, fyrr en öll er.

Valdimar Jóhannsson 1.1.2009 kl. 13:57

2 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Já þetta er komið út í algjörar öfgar. Mótmæli þurfa að vera skýr og málefnaleg. Það verður að koma fram hvað mótmælendur vilja og hvaða stefnu þeir hafa.  Ekki bara merkingarlaus slagorð og upphróp.

Þorsteinn Sverrisson, 1.1.2009 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband