Auðvitað þarf að hækka skatta, listamenn gera ekkert ókeypis.

Var ekki verið að hækka laun listamanna og einnhver þarf að borga það. Þá með hærri sköttum eða niðurskurði í heilbrigðismálum. Er það félagslega réttlætið sem VG hreykir sér af.

mbl.is 3% skattur á 500 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Passaðu þig á því að "laun listamanna" og "listamannalaun" er tvennt ólíkt.

Ég er listamaður og enn á sama kaupinu )-:

Bragi Þór Valsson 23.3.2009 kl. 15:47

2 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Ætli Haukur eigi ekki við sk. listamannalaun sem Katrín Jakobsdóttir var að segja að þyrfti að hækka.

Auðvitað eiga listamenn að geta lifað af list sinni og sjálfsagt að til séu styrkir til að þeir geti komið sér á framfæri og orðið matvinnungar. Að listamenn fái hins vegar greidd mánaðarlaun af opinberu fé, án þess að vera beinlínis að vinna fyrir hið opinbera skil ég ekki. Hvað þá þegar metsöluhöfundar eru áskrifendur að launum hjá skattborgurunum árum saman.

Emil Örn Kristjánsson, 23.3.2009 kl. 16:17

3 Smámynd: Héðinn Björnsson

Listamannalaun voru lækkuð til þess að hægt væri að setja fleiri á listamannalaun fyrir sama pening.

Héðinn Björnsson, 23.3.2009 kl. 16:27

4 identicon

Þar tapaði kallinn mínu atkvæði.

Skattar eru hlutfallslegir af ástæðu. Því er fólk með hærri laun nú þegar að borga meira.

Nína 23.3.2009 kl. 17:48

5 Smámynd: Héðinn Björnsson

Eigum við að reyna að setja hlutina í samhengi?

Laun    Núverandi    Tillaga VG
150000    9,1%    9,1%
200000    16,1%    16,1%
300000    23,1%    23,1%
400000    26,6%    26,6%
500000    28,8%    28,8%
600000    30,2%    30,7%
700000    31,2%    32,0%
800000    31,9%    33,7%
900000    32,5%    35,0%
1000000    33,0%    36,0%
2000000    35,1%    40,6%
5000000    36,4%    43,4%
10000000    36,8%    44,3%
 

Héðinn Björnsson, 23.3.2009 kl. 18:07

6 Smámynd: Haukur Gunnarsson

Þegar ástandið er svona á ekki að hækka, frekar að lækka. Það þarf allsstaðar að skera niður og finnst mér þessi starfsemi sé ekki undanskilin. Engin þörf að hafa allt þetta fólk á ríkisjötunni, tala nú ekki um með þá sem hafa góð laun af sínum verkum, mikklu hærri en almennt verkafólk. Að sjálfsögðu eru þeir sem njóta ekki sammála mér. Þó það nú væri líka.

Haukur Gunnarsson, 23.3.2009 kl. 19:17

7 identicon

Ef að þessir listamenn geta ekki selt listaverk til þess að lifa af þá eiga þeir eðlilega að fá sér aðra vinnu, t.d. gerast launþegi og vinna fyrir sínum launum og sköttum eins og stétt vinnandi manna gerir.

Listamannalaum eru tímaskekkja sem á að leggja af um alla framtíð því speninn er dottinn af vegna ofnotkunnar! 

Einar Kristjáns 23.3.2009 kl. 23:30

8 identicon

Úr því að ástandið er svona er ekki hjá því komist að það verður að hækka skatta. 

Bankarinir hrundu meðan ríkisstjórn Geirs Haarde horfði aðgerðarlaus á og það er þegar búið að senda reikninginn til þín. 

Þú átt að borga hann (og ég líka)

101 24.3.2009 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband