Verndaði Samf. ekki nokkra af þeim sem settu bankanna á hausinn??

Hvert var helsta verkefni formanns Samf. í samstarfinu við XD að reyna að koma okkur í Öryggisráðið, arfleið frá Framsókn. Hún fulyirti líka að það væri engin kreppa í nánd, enda gerði hún eða hennar flokkur ekkert til að bregðast við. Setti meira að segja bankamálaráðherran í salt, svo hann vissi ekkert hvað um var að vera. Og héldu svo verndarhendi yfir einum að aðalgerendunum í bankahruninu, sem rændu einn bankann að innanverðu.
mbl.is Ekki tekið á einstaklingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sorrý... en þetta er geinilega einhverjum öðrum að kenna en mér...

Jóhrannar.

Óskar Guðmundsson 6.12.2010 kl. 13:57

2 Smámynd: Jón Óskarsson

Jólabók bankamálaráðherrans fyrrverandi breyttist í besta falli í lélega brandarabók þegar sá maður lýsti því yfir í bókinni að hvorki hann né neinn í viðskiptaráðuneytinu (og sennilega enginn annar í ríkisstjórninni heldur) hefðu vitað um stofnun Icesave í Hollandi.   Í ráðuneytinu var semsagt ekki fylgst með viðskiptafréttatímum fjölmiðlanna eða viðskiptablöðum sem gefin voru út og var þó af nógu að taka á þessum tíma í fjölmiðlaheimi landsins.  Eina sem sá ráðherra dundaði sér við í eitt og hálft ár (sennilega í gluggalausu herbergi og alveg án netsins, útvarps og sjónvarps) var að smíða handónýt og stórgölluð innheimtulög.

Jón Óskarsson, 7.12.2010 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband